Auglýsingar (Síða 45)

Fyrirsagnalisti

22. nóv. 2013 : Útboð - Urriðaholtsskóli - hönnun

Bæjarsjóður Garðabæjar óskar eftir áhugasömum ráðgjöfum til að taka þátt í útboði á hönnun vegna nýbyggingar skólahúsnæðis í Urriðaholti í Garðabæ Lesa meira

21. nóv. 2013 : Bætt hljóðvist við Hafnarfjarðarveg - samráðsfundur

Boðað er til samráðsfundar með íbúum við Faxatún, Aratún, Goðatún Hörgatún, Breiðakur, Dalakur og Árakur, til að ræða tillögur að hljóðvörnum og landslagsmótun austan Hafnarfjarðarvegar. Fundurinn verður haldinn í Hofsstaðaskóla, fimmtudaginn 28. nóvember kl. 18:00. Lesa meira

21. nóv. 2013 : Tillaga að deiliskipulagi á Álftanesi, Kirkjubrú 1 - forkynning

Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123 2010 auglýsir Garðabær hér með forkynningu á tillögu að deiliskipulagi Kirkjubrúar 1 sem nær til svæðisins sunnan við íbúðarbyggð við Tjarnarbrekku. Lesa meira

19. nóv. 2013 : Hverfafundi frestað til 26. nóv

Hverfafundur með íbúum í Ásahverfi og Prýðum verður frestað þar til þriðjudags 26. nóvember kl. 20 í Sjálandsskóla. Áfram Ísland! Lesa meira

15. nóv. 2013 : Þátttaka í jóla- og góðgerðardegi á Álftanesi

Hinn árlegi Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi verður haldinn laugardaginn 30. nóvember. Félagasamtök og einstaklingar sem hafa áhuga á að taka þátt í deginum með söluvarning eða öðru geta haft samband við Lesa meira

14. nóv. 2013 : Tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda

Garðabær auglýsir hér með kynningu á tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til opna svæðisins við Arnarnesvog, norðan og austan við fjölbýlishúsið Alviðru við Sjávargrund. Lesa meira

5. nóv. 2013 : Íþróttamaður Garðabæjar - tilnefningar félaga

Í tilefni af vali á íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar óskar Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar eftir tilnefningum íþróttafélaga og deilda til Íþróttamanns Garðabæjar 2013. Lesa meira

1. nóv. 2013 : Auglýst eftir jólatrjám úr görðum

Auglýsum eftir jólatrjám úr görðum til að setja á opin svæði bæjarins. Lesa meira

1. nóv. 2013 : Endurskoðun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins

Verkefnislýsing vegan endurskoðunar svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins er aðgengileg hér á vefnum Lesa meira

10. okt. 2013 : Kaldavatnsleysi á Álftanesi föstudag 11. okt

Vegna viðgerðar á stofnlögn vatnsveitunnar á Álftanesi verður lokað fyrir kalda vatnið föstudaginn 11. október frá hádegi og til kl. 17:00. Íbúum er bent á að gæta sérstakrar varúðar þar sem einungis kemur heitt vatn úr blöndunartækjum. Lesa meira

10. okt. 2013 : Íþróttamiðstöðin á Álftanesi lokuð 11. okt frá 12-17

Íþróttamiðstöðin á Álftanesi / sundlaugin verður lokuð föstudaginn 11. október frá hádegi til kl. 17 á meðan viðgerð stendur yfir á stofnlögn vatnsveitunnar á Álftanesi. Lesa meira

25. sep. 2013 : Forkynning á breytingu deiliskipulags Ása og Grunda

Garðabær auglýsir hér með forkynningu á tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til opna svæðisins við Arnarnesvog, norðan og austan við fjölbýlishúsið Alviðru við Sjávargrund. Lesa meira
Síða 45 af 52