Auglýsingar (Síða 40)

Fyrirsagnalisti

2. des. 2014 : Auglýsing um deiliskipulag í Garðabæ

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Lesa meira

20. nóv. 2014 : Bjarnastaðir - aðstaða fyrir félög/félagasamtök

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir hér með eftir umsóknum félaga/félagasamtaka í Garðabæ um afnot af húsnæði á Bjarnastöðum, Álftanesi fyrir skrifstofur, varðveislu skjala, fundarhöld, viðburði og alls kyns menningar- og náttúrufræðastarf sem húsnæðinu hæfir. Lesa meira

19. nóv. 2014 : Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks Lesa meira

13. nóv. 2014 : Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi

Jóla- og góðgerðadagur á Álftanesi verður haldinn 29. nóvember, auglýst er eftir félagasamtökum og einstaklingum sem vilja vera með söluborð Lesa meira

10. nóv. 2014 : Álftanesvegur, breyting á umferð

Umferð hefur nú verið hleypt á endurbyggðan Álftanesveg milli Garðaholts og Garðavegar. Í þessari viku verður unnið við lagfæringar fláa og uppsetningu vegriðs. Einnig er vakin athygli á, að tenging núverandi vegar við þann nýja er bráðabirgðatenging og veglýsing aukin á þeim kafla og hámarkshraði þar 50 km./klst. Lesa meira

4. nóv. 2014 : Tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar, forkynning

Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123 2010 auglýsir Garðabær hér með forkynningu á tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar. Lesa meira

28. okt. 2014 : Truflanir á umferð á Álftanesvegi, nauðsynlegt að fara hjáleið

Frá og með hádegi í gær, mánudaginn 27. október verður unnið að nýjum áfanga á Álftanesvegi og fara þarf hjáleið um Garðaholt og Garðaveg á meðan á þeirri framkvæmd stendur. Vegfarendur eru hvattir til að fara varlega. Lesa meira

16. okt. 2014 : Breyttur skilafrestur á byggingarnefndarteikningum

Breyting hefur verið gerð á afhendingartíma teikninga, sem leggja þarf fyrir bæjarráð. Nú þurfa teikningar sem fara eiga fyrir bæjarráð að berast í síðasta lagi á hádegi á þriðjudegi eða á hádegi viku fyrir fund bæjarráðs. Lesa meira

16. okt. 2014 : Álftanesvegur, truflanir á umferð

Fimmtudaginn 16. október hófst vinna við endurnýjun slitlags á Álftanesvegi á 600 metra kafla frá hringtorgi við Bessastaðaveg að Garðavegi. Áætlað er að verkið standi í 10 daga og má búast við verulegum truflunum á umferð þann tíma. Lesa meira

8. okt. 2014 : Urriðaholt, norðurhluti 2. áfangi. Forkynning deiliskipulagstillögu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur vísað tillögu að deiliskipulagi 2.áfanga norðurhluta Urriðaholts til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.greinar Skipulagslaga nr.123/2010. Lesa meira

26. sep. 2014 : Urriðaholt – jarðvinna vegna skóla

Garðabær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu fyrir grunnskóla í Urriðaholti. Verkið felst í því að grafa út grunn og bílastæði á lóðinni Vörðuvegur 1-3 í Urriðaholti í Garðabæ og fjarlægja efnið. Lesa meira

26. sep. 2014 : Álftanesvegur, endurnýjun göngu- og hjólastígs

Göngu- og hjólastígur sem liggur meðfram Álftanesvegi verður endurbyggður á um eins kílómeters kafla til suðurs frá hringtorgi við Bessastaðaveg. Þessi endurbygging er hluti af framkvæmd við endurbyggingu Álftanesvegar. Vinna við endurbyggingu stígsins hefst mánudag 29. september og áætlað að henni ljúki föstudag 18. október. Lesa meira
Síða 40 af 52