| Bæjarráð Garðabæjar - 10. (2205) |
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi, 17.03.2026 og hófst hann kl. 08:00 |
|
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður, Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður, Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður, Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður, Guðlaugur Kristmundsson áheyrnarfulltrúi, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi. |
|
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2410186 - Skuldabréfaútboð Garðabæjar |
Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 16. mars 2026. Heildartilboð í flokkinn voru 7 talsins og námu samtals 2.273,5 m.kr. að nafnverði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 1.043,5 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,78%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.499.341.653 kr. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 5.190 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 6.233,5m.kr. að nafnverði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.
|
|
|
|
| 2. 2311400 - Hjólreiðastefna Garðabæjar |
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, kynnti drög að Hjólreiðastefnu Garðabæjar 2025-2030. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi drög að Hjóleiðastefnu Garðabæjar. |
|
|
|
| 3. 1903268 - Tölulegar upplýsingar í barnavernd. |
| Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri barnaverndar fór yfir tölulegar upplýsingar í barnavernd. |
|
|
|
| 4. 2603007 - Tilkynning Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri, dags. 03.03.26. |
Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri barnaverndar kynnti tilkynningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldri barnaverndarþjónustu vegna barna í fóstri. Þá kynnti hún fyrirkomulag vinnu Garðabæjar við svör við erindinu. Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu á velferðarsviði.
|
|
|
|
| 5. 2510261 - Stafræn málefni - nýr vefur |
| Ágúst Þór Guðmundsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs kynnti vinnu við nýjan vef bæjarins, sem til stendur að verði opnaður innan skamms. |
|
|
|
| 6. 2509036 - Garðatorg 7 - Þjónustuver, Umsókn um byggingarheimild. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir innanhússbreytingum á afgreiðslu bæjarskrifstofu Garðabæjar, að Garðatorgi 7. |
|
|
|
| 7. 2601520 - Stekkholt 18 - Umsókn um byggingarleyfi. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Tandra Má Konráðssyni, kt. 080690-2319, leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum að Stekkholti 18. |
|
|
|
| 8. 2603159 - Ránargrund 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vog, siglingaklúbbi, kt. 590380-0169, stöðuleyfi fyrir aðstöðuhús við bátaramp að Ránargrund 2. |
|
|
|
| 9. 2602301 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi. |
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Dalprýði 13, sem gerir ráð fyrir nýjum glugga á norðurhlið íbúðarhússins. Innanhúsbreyting sú sem kallar á þessa útlitsbreytingu er sú að gert verður ráð fyrir svefnherbergi á þessum stað. Í deiliskipulagsgreinargerð deiliskipulags Garðahrauns segir í kafla 2.2.2. Húsagerðir: "Þó að ákvæði um nýtingahlutfall og byggingarreiti sé mjög rýmilegt, ber að taka tillit til útisvæða lóða í sólarátt og innsýnismöguleika frá öðrum húsum, auk hraunmyndana á lóðum."
Með vísan í ofangreint ákvæði vísaði skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 hvað innsýnismöguleika varðar. Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 10 og 11. |
|
|
|
| 10. 2603130 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Útholt 13-21 - Deiliskipulagsbreyting |
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til raðhúslengjunnar Útholt 13-21. Fyrir breytingu eru byggingareitir endahúsa 10,5 m en miðjuhúsa 9,0 m. Tillagan gerir ráð fyrir því að allir byggingareitir verði 9,6 m. Mörk byggingareita milli húsa færast því til í þeim tilgangi að jafna stærðir húsanna. Skipulagsnefnd mat breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður. |
|
|
|
| 11. 2603159 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Ránargrund 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs |
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi fyrirspurn siglingaklúbbsins Vogs til Garðabæjar um veitingu stöðuleyfis fyrir aðstöðuhús á lóðinni Ránargrund 2. Húsinu er ætlað að veita aðstöðu til fataskipta og kennslu sem og fyrir búnað tengdum fyrstu hjálp. Húsin samanstanda af tveimur einingum sem eru 6,1 x 2,45 að grunnfleti og 2,6 m á hæð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að veitt verði stöðuleyfi fyrir húsin á meðan þau uppfylla eftirfarandi skilyrði: Grunnflötur þeirra sé 2 x 2,45 x 6,1 m2 Hæð þeirra sé að hámarki 2,6 m. Leyfið verði veitt til 1.október nk. Leyfið verði veitt fyrir starfsemi í tengslum við ungmennastarf siglingaklúbbsins. |
|
|
|
| 12. 2601351 - Hönnun - Útboð -Lambamýri 2. áfangi - Frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni. |
Lögð fram útboðslýsing innanhússfrágangs félagsmiðstöðvar frístundaþjónustu fyrir fötluð ungmenni að Lambamýri 1-3.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
|
|
|
|
| 13. 2603213 - Hönnun - Útboð - Búsetukjarni við Haustbraut, jarðvinna. |
Lögð fram útboðslýsing vegna jarðvinnu fyrir 7 íbúða búsetukjarna ásamt starfsmannaaðstöðu við Haustbraut 2.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
|
|
|
|
| 14. 2603238 - Hönnun - Útboð - Sláttur og hirðing 2026-2028. |
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna sláttar og hirðingar 2026-2028.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
|
|
|
|
| 15. 2603220 - Endurnýjun samstarfssamnings við Umf. Stjörnuna. |
| Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna og samning um rekstur knattspyrnuvalla í Garðabæ, báða með gildistíma til 31. desember 2028. |
|
|
|
| 16. 2603102 - Umsögn Garðabæjar varðandi frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505 mál. |
Lögð fram drög að athugasemdum Garðabæjar vegna frumvarps til nýrra sveitarstjórnarlaga. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að koma sjónarmiðum bæjarins á framfæri í samráðsgátt. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 |
|