Fundargerðir

Til baka Prenta
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar - 39

Haldinn í Sveinatungu, Garðatorgi,
25.03.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður,
Jóhann Steinar Ingimundarson aðalmaður,
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir varamaður,
Hannes Ingi Geirsson aðalmaður,
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir aðalmaður,
Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Edda Björg Sigurðardóttir grunn- og tónlistarskólafulltrúi, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Anna María Skúladóttir fulltrúi skólastjóra, Ragnheiður Stephensen fulltrúi kennara, Vera Rut Ragnarsdóttir fulltrúi foreldra.
Fundargerð ritaði: Edda Björg Sigurðardóttir, grunn- og tónlistarskólafulltrúi Garðabæjar
Nefndamenn samþykktu tillögu formanns, að bæta tölulið 5 við dagskrá.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2304498 - Innleiðing farsældar í Garðabæ
Verkefnastjóri farsældar í Garðabæ, Sólveig Norðfjörð kynnti stöðu innleiðingar í Garðabæ.
2. 2510245 - Þróunarsjóður grunnskóla 2026-2027
Lagt var fram til kynningar upplýsingar um úthlutun úr Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar 2026. Að þessu sinni bárust 25 umsóknir, sótt var um kr. 57.631.860.- Allar umsóknir voru teknar til afgreiðslu, 20 verkefni fengu úthlutað. Skólanefnd lagði til við bæjarráð að úthlutað yrði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 28.000.000.-, í samræmi við reglur sjóðsins. Skólanefnd fagnar fjölda áhugaverðra umsókna sem bera vitni um metnaðarfullt og framsækið skólastarf í Garðabæ og hvetur þá sem ekki fengu úthlutað að þessu sinni að sækja um að ári liðnu.
3. 2603024 - Erindi til leik- og grunnskólanefnda frá Hjallastefnunni
Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar óskar eftir að færa einn af skipulagsdögum haustsins á skóladagatali skólaársins 2026-2027, það er skipulagsdaginn 21. september verði færður til 9. október 2026, vegna sameiginlegs starfsdags Hjallastefnunnar. Skólanefnd bókar að Garðabær hefur samþykkt skóladagatöl tvö ár fram í tímann. Skólanefnd samþykkir erindið enda tryggi skólinn opnun frístundaheimilisins og þjónustu fyrir þá nemendur sem á því þurfa að halda. Skólanefnd leggur áherslu að skipulagsdagar falli að sameiginlegu skóladagatali í leik- og grunnskólum Garðabæjar.
4. 2603025 - Erindi til skólanefndar frá Flataskóli
Skólanefnd samþykkir erindi Flataskóla miðað við gefnar forsendar.
5. 2601547 - Hjallastefnan, uppbygging á Vífilsstöðum
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður skólanefndar grunnskóla og Linda Udengaard sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynntu ný undirritaðan samning við Hjallastefnuna. Samningurinn felur í sér frekari uppbyggingu Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Skólanefnd fagnar faglegu og fjölbreyttu námsumhverfi barna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).