Fundargerðir

Til baka Prenta
Velferðarráð Garðabæjar - 3

Haldinn í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi,
20.03.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Gunnar Valur Gíslason formaður,
Sturla D Þorsteinsson aðalmaður,
María Guðjónsdóttir aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Rakel Steinberg Sölvadóttir aðalmaður,
Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Snædís Björnsdóttir lögfræðingur, Pála Marie Einarsdóttir deildarstjóri.
Fundargerð ritaði: Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2509275 - Endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks
Lokadrög að endurskoðaðri stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks lögð fram.
Lokadrög að endurskoðaðri stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks lögð fram.
Velferðarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og vísar stefnunni til umfjöllunar í bæjarráði. Jafnframt verður stefnan send samráðshópi um málefni fatlaðs fólks til upplýsingar.
2. 2509271 - Frístundaþjónusta fatlaðra ungmenna
Staða verkefnis kynnt.
Upplýsingar um stöðu framkvæmda vegna frístundaþjónustu fatlaðra ungmenna lagðar fram til umræðu.
3. 2410319 - Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Staða verkefnis kynnt.
Staða verkefnis og næstu skref í framkvæmd til umræðu og kynningar.
4. 2603272 - Skammtímadvöl fatlað barn
Beiðni um undanþágu frá 8. gr. reglna um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ.
Velferðarráð samþykkir að veita undanþágu frá 8. gr. reglna um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk í Garðabæ. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
5. 2101189 - Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð samsráðsfundar velferðarsviða hjá SSH í mars lögð fram til kynningar.
Fundargerð samsráðsfundar velferðarsviða hjá SSH í mars lögð fram til kynningar.
6. 2603007 - Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri
Frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á eftirlitsskyldri barnaverndarþjónustu vegna barna í fóstri lögð fram til kynningar.
Frumkvæðisathugun Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála á eftirlitsskyldri barnaverndarþjónustu vegna barna í fóstri lögð fram til kynningar.
7. 2511456 - Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026
Drög að stafrænni húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026 lögð fram til umræðu.
Drög að stafrænni húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026 lögð fram til kynningar og umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).