Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd Garðabæjar - 6

Haldinn í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi,
26.03.2026 og hófst hann kl. 15:30
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Kjartan Vilhjálmsson aðalmaður,
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir aðalmaður,
Baldur Ólafur Svavarsson aðalmaður,
Guðlaugur Kristmundsson aðalmaður,
Hlynur Elías Bæringsson áheyrnarfulltrúi,
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri, Anna Guðrún Gylfadóttir byggingarfulltrúi, Anna María Guðmundsdóttir verkefnastjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Hrönn Hafliðadóttir verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2512147 - Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Sigbjörn Kjartansson og Bæring Bjarnar Jónsson hjá Glámu Kím gerðu grein fyrir drögum að deiliskipulagi 1. áfanga deiliskipulags Vífilsstaða.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
2. 1903374 - Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Norðurness að lokinni forkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
3. 1803108 - Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness að lokinni forkynningu. Björn Guðbrandsson og Edda Kristín Einarsdóttir hjá Arkís og Þráinn Hauksson hjá Landslagi fóru yfir valkosti að mótun tillögunnar í kjölfar forkynningar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjörum.
4. 2010080 - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar sem nær til Garðaholts og Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
5. 2010078 - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
6. 2601206 - Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Hraunhólar 6A að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
7. 2509209 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
8. 2601487 - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til athafnalóðanna Suðurhrauns 8 og 10.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
9. 2511456 - Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026
Húsnæðisáætlun Garðabæjar lögð fram.
10. 2311400 - Hjólreiðastefna Garðabæjar
Hjólreiðastefnu Garðabæjar lögð fram.
11. 2602075 - Deiliskipulag Hraun vegna Stapahrauns 8-10 og Flathrauns 27
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 

Til baka Prenta

Fylgigögn eru birt með fundargerðum:

  • bæjarráðs, frá og með 12. fundi 2015
  • skólanefndar grunnskóla frá og með 14. fundi 2015
  • mannréttinda- og forvarnanefndar frá og með 16. fundi 2015
  • umhverfisnefndar frá og með 18. fundi 2015
  • leikskólanefndar frá og með 15. fundi 2015
  • menningar- og safnanefndar frá og með 12. fundi 2015
  • íþrótta- og tómstundaráðs frá og með 14. fundi 2015

Reglur um birtingu gagna með fundargerðum (sjá reglur undir stjórnsýslu).