| Bæjarráð Garðabæjar - 11. (2206) |
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi, 24.03.2026 og hófst hann kl. 08:00 |
|
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður, Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður, Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður, Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður, Rakel Steinberg Sölvadóttir varaáheyrnarfulltrúi, Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs. |
|
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2511456 - Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026. |
| Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála á umhverfissviði og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði mættu á fund bæjarráðs og kynntu stöðu við vinnu húsnæðisáætlunar Garðabæjar. |
|
|
|
| 2. 2602054 - Hegranes 35 - Umsókn um byggingarheimild. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gunnari Hauki Stefánssyni, kt. 161072-4949, leyfi fyrir viðbyggingu einbýlishúss að Hegranesi 35. |
|
|
|
| 3. 2501205 - Víkurgata 2 - Umsókn um byggingarleyfi. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Víkurgötu 2, húsfélagi, kt. 660419-1010, leyfi til að loka bílakjallara með fellihurð og gönguhurð ásamt að loka ljósopi í þaki bílakjallara, að Víkurgötu 2. |
|
|
|
| 4. 2601207 - Markarflöt 30 - Umsókn um byggingarheimild. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ómari Benediktssyni kt. 221059-4689, leyfi fyrir viðbyggingu við vesturhluta einbýlishúss, ásamt innri breytingum, að Markarflöt 30. |
|
|
|
| 5. 2603323 - Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarheimild. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Trausta Ólafssyni, kt. 090574-5669, leyfi til að taka í notkun lokað rými í einbýlishúsi að Dalprýði 13. |
|
|
|
| 6. 2602327 - Vetrarbraut 30 - Umsókn um byggingarleyfi. |
| Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi til að innrétta austurhluta 2. hæðar fyrir sjúkraþjálfun, að Vetrarbraut 30. |
|
|
|
| 7. 2603255 - Tilkynning frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála um stjórnsýslukæru vegna ákvörðunar bæjarstjórnar um deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts, dags. 12.03.26. |
Lögð fram kæra Geirs Jóns Grettissonar og Berthu Kristínar Jónsdóttur, Þorrasölum 9, Kópavogi til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Garðabæjar um deiliskipulaga við Vetrarmýri og Smalaholti sem birt var með auglýsingu í B-hluta Stjórnartíðinda með nr. 154/2026. Kæran beinist sérstaklega að ákvörðun um lagningu Vorbrautar við Þorrasali og tengingar hennar við gatnakerfi Kópavogs. Bæjarráð felur Juris lögmannsstofu að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
|
|
|
|
| 8. 2603335 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Garðabæjar um veitingaleyfi í Lambamýri. |
Lögð fram umsókn Garðabæjar um Veitingaleyfi í Flokki II - G Samkomusalir í fl. I að Lambamýri 1. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt. |
|
|
|
| 9. 2603336 - Fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengda afslætti til barnafjölskyldna. |
Lögð fram fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengda afslætti til barnafjölskyldna, ásamt samantekt svara við fyrirspurninni.
|
| Fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengda afslætti til barnafjölskyldna.pdf |
| Reglur-um-tekjutengingu-afslattar-samth_bst_041225.pdf |
| hvatapeningar 2026.pdf |
| Svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um tekjutengingu.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 |
|